Psalms 109

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Þú Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður, 2því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir í gegn mér, tala við mig með ljúgandi tungu. 3Með hatursorðum umkringja þeir mig og áreita mig að ástæðulausu. 4Þeir launa mér elsku mína með ofsókn, en ég gjöri ekki annað en biðja. 5Þeir launa mér gott með illu og elsku mína með hatri. 6Set óguðlegan yfir mótstöðumann minn, og ákærandinn standi honum til hægri handar. 7Hann gangi sekur frá dómi og bæn hans verði til syndar. 8Dagar hans verði fáir, og annar hljóti embætti hans. 9Börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja. 10Börn hans fari á flæking og vergang, þau verði rekin burt úr rústum sínum. 11Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans, og útlendir fjandmenn ræni afla hans. 12Enginn sýni honum líkn, og enginn aumkist yfir föðurlausu börnin hans. 13Niðjar hans verði afmáðir, nafn hans útskafið í fyrsta ættlið. 14Misgjörðar feðra hans verði minnst af Drottni og synd móður hans eigi afmáð, 15séu þær ætíð fyrir sjónum Drottins og hann afmái minningu þeirra af jörðunni 16sakir þess, að hann mundi eigi eftir að sýna elsku, heldur ofsótti hinn hrjáða og snauða og hinn ráðþrota til þess að drepa hann. 17Hann elskaði bölvunina, hún bitni þá á honum, hann smáði blessunina, hún sé þá fjarri honum. 18Hann íklæddist bölvuninni sem kufli, hún læsti sig þá inn í innyfli hans sem vatn og í bein hans sem olía, 19hún verði honum sem klæði, er hann sveipar um sig, og sem belti, er hann sífellt gyrðist. 20Þetta séu laun andstæðinga minna frá Drottni og þeirra, er tala illt í gegn mér. 21En þú, Drottinn Guð, breyt við mig eftir gæsku miskunnar þinnar, frelsa mig sakir nafns þíns, 22því að ég er hrjáður og snauður, hjartað berst ákaft í brjósti mér. 23Ég hverf sem hallur skuggi, ég er hristur út eins og jarðvargar. 24Kné mín skjögra af föstu, og hold mitt tærist af viðsmjörsskorti. 25Ég er orðinn þeim að spotti, þegar þeir sjá mig, hrista þeir höfuðið. 26Veit mér lið, Drottinn, Guð minn, hjálpa mér eftir miskunn þinni, 27að þeir megi komast að raun um, að það var þín hönd, að það varst þú, Drottinn, sem gjörðir það. 28Bölvi þeir, þú munt blessa, verði þeir til skammar, er rísa gegn mér, en þjónn þinn gleðjist. 29Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing, sveipi um sig skömminni eins og skikkju. 30Ég vil lofa Drottin mikillega með munni mínum, meðal fjölmennis vil ég vegsama hann, 31því að hann stendur hinum snauða til hægri handar til þess að hjálpa honum gegn þeim er sakfella hann.
Copyright information for Icelandic